Ákvað að henda inn nokkrum línum svona bara til þess að hressa þetta við hérna

Ekkert að frétta hérna megin frekar en vanalega, bara búin að vera í skólanum á fullu, alltaf brjálað að gera, vorum að skila einu stóru verkefni í dag og öðru á miðvikudag, mjög gott að vera búin að þessu dralli

og svo kemur bara helgi og þá verður nú partý

Er að fara suður á föstudaginn með nýju kærustunni minni henni Heiðu Björg og ætlum við að gista hjá Paddanum (hlakka geggjað til að hitta þig elsku paddinn minn) á föstudagsnóttina og vera svo rómantískar á hóteli á laugardagskvöldið heheh

neinei róum okkur.. erum að fara á árshátíð Kaupþings á laugardagskvöldið og vonand verður það geggjað gaman, hlakkar allavegana mjög mikið til

Við Heiða og BBB erum svo búnar að leigja okkur bílaleigubíl í borginni til rúnta á milli búðanna, maður verður nú að reyna að kaupa sér eitthvað, þýðir ekkert annað!
Við erum svo að fara að hittast í dag og segja bless Pálu okkar þar sem að hún er að fara út til að hitta loksins Svenna sinn, verður gaman fyrir þau

Væri samt alveg til í að troða mér með henni í töskuna og fara í frí og kannski smá í sólbað og já kannski líka bara oggulítið ponsu í búðir

við yrðum sko illa góðar saman í búðunum, kunnum þetta alveg reyndar

Barbara mín hvað er svo að frétta af þér? Sakna þín reyndar í klessu, gengur ekki að þú sért þarna bara í álaborg í ruglinu eheh

Þú mátt svo ekki gleyma að ná í mig núna rétt fyrir páska áður en þú ferð til Tenerife, manstu ég ætlaði með, er það ekki annars rétt munað hjá mér!

Allir að fara eitthvað en það er nú bara gaman

Heyrðu já Íris hvenær kemur þú norður með ofurfallega barnið þitt?

Komið nóg í bili og svo óska þess að þið þarna lúðar sem þykist líka eiga þessa síðu, kannski sjáið ykkur fært um að blogga eins nokkrar línur hehehhe ein brjáluð

Kv Bjarney sem að á að vera að gera eitthvað í vinnunni
Takk og bæ